|
|
04.07.2008 01:17:34 / bjarki
Hvað segist?
Frekar langt síðan maður smellti inn einn einni glataðri færslunni... um að gera það núna. Ég tölvuséniíð sjálft er kominn með tölvu og hvað er þá annað að gera en að blogga þegar maður getur ekki sofnað. Hef reyndar ekki sofið mikið þessa vikuna á eitthvað fáranlega erfitt með að sofna og hvað þá að halda mér sofandi yfir nóttina... vinn þetta upp um helgina. En hvað um það!
Hvað hefur gerst í mínu mikilvæga lífi á meðan ég bloggaði ekki? Kjeppinn nýlega kominn heim frá Thailand og Cambodiu sem dæmi.. gera aðrir betur en það? nei hélt ekki! ýmislegt sem gekk þar á... fór til dæmis í einvígi við kjúkkling... ég var með M50 machine gun og kjúllinn ekkert.... ég vann... hann SPRAKK! Kafaði meðal ójafninga í sjónum í Thailandi... sá gamli og sköllótti er kominn með diversliecens jebb löggiltur kafari niður á 20metra dýpi, svo ef þig vantar kafara með hæfileika, gáfur og skalla þá hringiru í greifann og hann reddar málunum. Já þokkaleg ferð, fimm vikur. nenni ekki að skrifa meira um það samt.
Helgin að koma að nálgast og ég hef ekki gert upp hug minn hvað gera skal... drekka eða ekki drekka... hhmmmm veit ekki. Ég veit það allavega að ég ætla að sofa fáranlega mikið... ég er búinn að vera drepast úr þreytu í allann dag en get samt ekki sofnað og það bætir ekki úr skák að ég á ekki einu sinni í vörina. Þið vörtökumenn skiljið hvað það er fokkin pirrandi..... !FOKK! En ef þú ert með uppástungu fyrir mig hvað gera skal um helgina láttu þá vaða.
Bjarki Þorsteinsson a.k.a. Greifinn is back out
»
03.05.2008 09:57:43 / bjarki
Blessi!
Thailand 14 mai til 14 júni.
Bjarki Ladyboy out -
»
12.01.2008 11:30:44 / bjarki
Ég varð 23 ára fyrir 8 dögum eða þann 4.janúar. Hingað til hefur 23 ára ekki verið talið neitt neitt í elli. EN ég ætla að afsanna það fyrir þér hér og nú að það er alls ekki rétt með nokkrum punktum. - Ég er að verða/orðinn sköllóttur, ennið á mér er orðið vafasamlega mikið. Hef reynt að redda mér fyrir horn og segja að ég sé að safna enni svona rétt einsog ég væri að safna frímerkjum en það er löngu dauð barátta.
- Ég tók tók eftir tveimur gulum punktum í hvítunni í augum mínum þegar ég var úti í Florida. Það skrítna við þessa punkta var að þeir voru á nákvæmlega sama stað í báðum augunum. Hef aldrei tekið eftir þessu áður svo var ekki alveg viss hvað væri í gangi. Þannig ég ákvað að fara til augnlæknis í gær.. Hann sagði mér basicly að ég væri orðinn gamall! Hann sagði orðrétt: Jú sjáðu til þetta eru rétt einsog hrukkur sem fólk fær í andlitið með tímanum. WHAT! er ég með hrukkur í augunm!! jájá sagði hann og vísaði mér út! Takk dokksi.
- Ég get ekki labbað upp stiga án þess að fá verk í hnéin, ég labbaði niður stigann í smáraturni í fyrradag af 10hæð mig sveið í bæði hnéin þegar ég fór að sofa um kvöldið!
- Síðan ég varð 23 er ég búinn að sofa ógeðslega mikið, þá er ég ekki að tala um 14 tíma um helgar neinei ég er búinn að sofna á hverju einasta helvitis kvöldi milli klukkan 21 og 22. Come on!
- Ekki nóg með það að ég er sofnaður áður en ungabarn leggst til hvílu þá er ég iðulega vaknaður um 6 leytið til að FOKKIN míga!!
- Ég er orðinn fréttasjúkur og horfi eginlega alltaf á fréttirnar og hlusta orðið bara á Bylgjuna yfir daginn.....
Einsog þið sjáið er ég Lost,búinn,farinn,útbruninn. En það er eitt sem ég get alltaf huggað mig við á hverju ári... að Björn er alltaf eldri en ég og hann er svona nokkurn veginn lifandi og á meðan hann lifir þá á ég ennþá séns, allavega í fimm ár í viðbót Bjarki Gamli Greifi Þorsteinsson out
»
26.11.2007 21:55:41 / bjarki
Já sææll. Leikur síðastliðin föstudag. Viðar RU vs. shit-crap-lið. Ég veit það ekki en við áttum að vinna þennan leik en svo fór ekki, ég ætla að útskýra fyrir þér... Leikurinn var nokkuð jafn allan tímann nema seinni part leiksins þá vorum við farnir að síga aðeins framúr þeim. Tuttugu sek eftir um það bil. Viðar fær boltann á okkar helming vallarins, oks ekkert mál, tripplar honum upp miðjuna... með manninn sinn á sér að pressa hann þokkalega. Litill gæji kemur stelur boltanum af Viðari, Viðar í sterakasti-reiðis-móki hleypur litla kallinn uppi og ætlar að blokka hann ægilega. Litli kall tekur 3.stiga skot (já ég gleymdi að segja við vorum 4stigum yfir þegar þetta gerist) og Viddi hoppar upp með honum og BAAMMM gæjinn neglir þrist í andlitið á viðari BAAMM. Viðari snilla tekst að brjóta líka á gaurnum... þannig hann fær eitt víti, sem hann neglir aftur í andlitið á vidda BAAMM. Vidda leið örugglega ekki vel á þessu stigi BAAMM. Þeir jafna leik með dyggri aðstoð viðars. Svo vinna þeir okkur með 2stigum í framl. Takk Viðar Jónsson Bjarki #4 out
»
17.09.2007 21:47:35 / bjarki
Djöfull er langt síðan ég bloggaði, skil ekki hvernig ég nenni því
meira að segja núna..... Svo er maður alltaf að lesa hjá öðrum og
verður nett pirraður á að fólk nenni ekki að blogga. Annars er
sumarið búið og vetur nánast kominn og fokk hvað það er fokkinn
kalt á morgnanna ég er bara alls ekki að meika það. Þar sem ég eyði
nú meiri part af deginum sitjandi á rassagatinu og talandi í símann
þá sé ég margt á götum borgarinnar.... Ég hef til dæmi séð tvær
gamlar kellinngar keyra i öfuga átt í hringtorgi, ég hló mjög mikið
af því og hringdi auðvitað beint i Runar bara til að segja honum
þetta. honum fannst þetta mjög fyndið líka, enda fyndið með
eindæmum. Tvo AMG benz-a hef ég séð bensínlausa á götum
borgarinnar... ég veit ekki hvað ég get svosem sagt um það annað en
þeir sem áttu þessa bíla eru aumingjar.. eiga töff bíl er eitt og
allt það en ÞAÐ að eiga geðveikan bíl og ekki eiga fyrir bensini er
mjög heimskulegt... ég hló líka mjög mikið af þessum tveim.. svo sá
ég gamla kellingu enn og aftur að keyra i vitlausa átt.. og það var
á miklubraut! jaja sú gamla bara i róleg heitum að hlusta létt eða
danna á FM'957 að keyra beint á móti mér... svo veifaði hún mér
svona frá. Svona rétt einsog ekkert væri eðlilegra en að veifa mér
frá á Miklubraut... Ég hló! ekki lagi með þessar gömlu kellingar!
Eigum við að ræða þetta eitthvað! nei hélt ekki! svo áfram með mig
og götur borgarinnar.. ég var að keyra borgartún um daginn. á
þessari götu eru mjög margar hliðargötur og stutt á milli þeirra..
það er bill á undan mér sem gefur stefnuljos til hægri og byrjar að
beygja, hann er sirka hálfnaður með beygjuna þegar ég ákveð að fara
svona vinstra megin við hann bara til að geta haldið áfram neinei
gæjinn á hinum bílnum ákveður bara uppúr þurru að að þetta sé ekki
nægilega góð beygja fyirr sig og tussubílinn sinn þannig hann tekur
netta U-beygju útur beygjunni! Ég varnarlaus og algjörlega saklaus
og þrýsti á flautuna á bílnum mínum bara svona rétt til að vara
hann við og til að tjá reiði mína i garð drengandskotans, hvað
haldið þið að mannfjandinn hafi gert????? neinei hann stoppaði ekki
nnneeeeiii hann gaf mér helvitis puttann... óþokki! þetta er bara
brotabrot af þeim skelfingum sem ég upplifi í umferð sorans í
reykjvik. Ekki á hversmanns borði að upplifa þetta kallinn minn.
Sumar var bara nokkuð nett... einkenndist af drykkju einsog öll
önnur sumur, ótrúlegt hvað við getum drukkið mikið íslendingarnir
mínir.. en svona er þetta. Hvað annað er hægt að gera spyr ég nú
samt bara? Fór á Þjóðhátíð sem einkenndist aðsjálfsögðu að
ofdrykkju og minnisleysis að miklum hluta, vaknaði síðasta
morguninn með eitt í huga að DDJJJAAAMMMMAAA og spurði hvort það
væri ekki örugglega eitt kvöld eftir.... neinei ekkert kvöld eftir
hehehe obbobb gamlli búinn að djamma yfir sig... var líka 3daga án
gríns að jafna mig... var með eitthvað sem heitir tremma og var með
ofskynjanir.. frekar sveitt. Sannur Íslendingur Kom í heimsokn í
heima hagana. Christof Kurtson er ekki viss hvort þetta verður bara
að duga. Djöfull var það gaman maður, útilega, fjallaferðir,
drykkja í höfuðstaðnum, Tomcat skel þunnir, velta og öskur í
Tomcat, grænt bláa lón djöfull gaman að fá þann stóra litla i
heimsókn Ég veit ekki hvernig haustið leggst í mig... Mig sárvantar
áhugamál, krossara eða fjórhjól hefur verið mér ofarlega í huga
undanfarið.. sjáum til, fæ Björn G með mér í þá vitleysu. Hann er
alltaf til í ruglið. Ægilegasta gengi síðari tíma er svo á leið til
Florida í desember... ójá. En það saman stendur af: Greifanum,
Herra Ógeðslegum, ég hugsa að ég flokki næsta mann sem Bob þarsem
hann er eginlega orðinn stærri og fyirferða meiri en búkurinn sem
fylgir honum og að lokum er Það GP-special, þetta er förunaut
dauðans... þessi ferð verður til þess að ég vinn einungis fimm daga
i des haha yyyeeessss baby maður. jæja ég held ég hafi aldrei
skrifað jafnlanga færslu. segjum þetta gott í bili. P.S. litli
broðir minn er að ríða og ég bara kemst ekki hjá því að heyra
öskrin í stelpunni, you go litle bro  ég gef þessari skvísu
munnkeflli í jólagjöf, svo mér geti farið að líða vel aftur....
Bjarki Greifi Þorsteinsson out
»
22.04.2007 23:20:14 / bjarki
blogg
»
27.02.2007 19:04:16 / bjarki
Svo langt síðan ég bloggaði að ég ákvað að smella einu inn ( ekki
kossi og ekki á kjaftinn) svona rétt á meðan ég bíð eftir að restin
af fjölskyldunni skríður í hús til að gúffa í sig gúrmei matnum sem
ég búinn að vera kokka. Já ótrúlegt en satt er ég að elda, reyndar
er ég massa kokkur, en þetta er samt ekki í mínum verkahring, alls
ekki. Mér er minnistæð færlsa sem óli skrifaði um mömmu sína og
konu um daginn núna. Ég er viss um það að ég fæ ógeðslega mörg takk
fyrir, peninga, respect og fleira i þeim dúr fyrir þetta afrek.
enda ekki mitt starf að elda. Hvað annað???
Var smá drukkinn um helgina, ekki mikið bara smá......
Af einhverjum ástæðum var ég ennþá þunnur í gær (mánudag)
Það er enginn heima og ég búinn að elda mat fyir 20 manns. ætla að
fara tryllast við einhvern fjölskyldumeðlim í símann....
Bjarki meik´it´ekki Þorsteinsson out
»
28.01.2007 18:53:23 / bjarki
Laugardagskvöldið fór í það að spila. Ég Rúnar og Óli tókum á móti
3 stelpum í spilakvöld. Skiptir kannski ekki endilega máli nema að
þetta kvöld átti að sanna að stelpur eru bara því miður ekki eins
gáfaðar og klárar og merkilegar og strákar eru svona öllu jöfnu.
Það var keppt í Buzz og trivial, ætti að vera nokkuð jafnt svona
dagsdaglega ég og Óli tókum meira að segja Rúnar með okkur í lið
bara svona til að stelpurnar ættu meiri möguleika en allt kom fyrir
ekki. Við gjörsamlega rústuðum stelpunum í þessu, mætti eginlegja
líkja þessu rústi við körfuboltaleik þar sem NBA lið myndi spila
við lið minnibolta stúlkna í körfu eða með öðrum oðrum þær áttu
aldrei séns, sáu ekki til sólar, komumst aldrei af botninum, gátu
EKKI neitt.... ég held að þú fattir hvað ég meina. Þannig ef
stelpur ætla að reyna eitthvað að tjá sig um að þær eigi að geta
eitthvað þá er það bara tal útum rassgatið þið getið ekki
neitt..... það var sannað í gærkvöldi með þessu ofsarústi og því
verður ekki breytt.....
Bjarki bara betri out
»
21.01.2007 20:41:45 / bjarki
Komst að því i gærkvöldi að Gummi bryti á margt líkt með
Gillznegger, svo hann mun vera kallaður gillz hingað til haha.
Annað ég er eginlega ekki að nenna að blogga, bæði ég hef ekkert að
segja og er líka svo fokkinn leiðinlegur einstaklingur og ljótur í
þokkabót að ég bara nenni þessu ekki lengur
hendi kannski einhverju inn þegar ég nenni en ekki búast við
færlsum fljóltega
Þangað til næst
Bjarki Greifi Þorsteinsson
»
02.01.2007 20:46:33 / bjarki
Síðasta árið hjá mér var bara nokkuð viðburðaríkt. Byrjaði árið á
að klára mína síðustu önn í framhaldsskóla. Eftir þokkalega
brenglaða skólagöngu útskirfaðist ég úr Fjölbraut í Breiðholti
siðastliðið vor... með fokkin stæl. Eitt af því sem ég hafði beðið
nokkuð lengi eftir og væntalega hef ég líka bætt nokkrum gráum
hárum á þykkt höfuðleður foreldra minna á þeirri leið Get ekki
annað sagt en ég sé mjög ánægður með að hafa klárað á þessum fimm
árum sem það tók, reyndar fjögur og hálf ár í skóla.
Sukkið hélt sínu striki og náði æðisgengdu hámarki í tveggja
mánaðar ferðalagi seinni part sumars og haustins. Ítalía, Þýskaland
og Austurríki voru fyrir valinu að þessu sinni. Hef sjálfsagt
útlistað þessari verð minni nokkuð oft og mikið hérna á blogginu
svo ég ætla ekki að hafa það lengra
Vinnan hefur svo heltekið mig ef svo mætti segja síðastliðnar
vikur, þar sem ég hef fengið mörg góð tækifæri á að sína hvað maður
getur og verður þokkalega góð reynsla í bankann. Ég sé ekki framá
annað en að vinna mín eigi eftir að aukast, verða fjölbreytnari og
meira krefjandi en margur heldur.
Stærstu atburðir ársins voru án efa útskriftin mín og ferðalagið.
Ég eginlega nenni ekki að skrifa langan pistill.....
Ég þakka öllum þeim sem voru mér samhliða á árinu sem er liðið og
óska þeim alls hins besta á komandi ári. Nýjar dyr hafa opnast hjá
mér með margvísilegum möguleikum og nú er bara mitt að spila úr
þeim spilum.
Takk fyrir árið
Bjarki “Greifi” Þorsteinsson
»
11.12.2006 23:11:32 / bjarki
Jæja......
Las færsluna hans Steina um daginn og var hann með heimskepilegar
pælingar um tilveruna. Eitthvað sem maður hefur oft pælt í og
einhvern veginn ekki endað í neinu, bara á sama reit og maður
byrjaði. Eftir þennan lestur á blogginu hans, hef ég ákveðið að
setja niður á blað það sem ég er oftast að pæla í sambærilegt
þessu... Flestir nenna væntanlega ekki að lesa áfram svo ég bið vel
að heilsa þeim.
Jæja.
Ég hef oft leitt hugan að því hvað gerir mann hamingjusaman og að
betri manni. Hvert er ég að fara í lífinu ásamt öðrum. Er ég á
réttri leið? Ætti ég að haga hlutum mínum öðruvísi? Það sem ég
stefni á núna á það eftir að gera mig hamingjusaman? Er eitthvað
til sem heitir hamingja? Er ég bara að fljóta með straumnum?
Þessar og mun fleiri spurningar eru mér oft ofarlega í huga.
Stundum pæli ég hvað er það sem gerir mig hamingjusaman, er það
vinnan, fjölskyldan, vinirnir, peningar og annað í þeim dúr. Hver
er sinn gæfu smiður er víst sagt, og vísar það, held ég, til þess
að maður býr til sína gæfu/hamingju sjálfur. EN hvernig veit maður
hvað á eftir að gera mig hamingjusaman? Ég er ekki að segja að ég
sé óhamingjusamur, þvert á mótr er ég þokkalega sáttur við
hlutskipti mín í lífinu dagsdaglega. En telst það til hamingju? Mér
hefur oft liðið ótrrúlega vel og mætti segja hamingjusamur, en það
er ekki vegna einhvers verknaðar, það kemur yfiirleitt allt í einu,
vakna þvílikt hress og kátur og er jolly allann daginn. Svo er
þessi hamingja sem allir eru að leitast eftir, hvað er hún og hvar
liggur hún? Auðvitað eiga allir góða og slæma daga, og alls þess á
milli. Tel ég þó að flestir sé á milli einhversstaðar, ekki
hamingjusamir og ekki óhamingjusamir bara svona "samir" samir alla
daga. Hvað er það sem gerir fólk ánægt og hamingjusamt. er
sjálfsagt einstaklingsbundið og ástæður örugglega jafn margar og
við erum mörg. En hvernig líðan er þessi hamingja sem maður heyrir
oft um? Er maður hamingjusamur allann daginn, alla daga? Svo er það
hvað er hamingja? Er það að vera sáttur við líf sitt og tilveru,
eða er það einhvað buzz sem er alltaf? Ég hugsa reyndar ekki, afar
fáir geta og eru það. Hvað er það sem gefur lífinu þá gildi? Ég fer
yfirleitt heilann hring í þessu öllu saman og allir þeir sem lesa
þetta skilja ekkert hvað ég meina, en mér er alveg sama! Svo eru
það þessi blessuðu peningamál endalaust, að vísu er það gefið mál
að peningar gætu auðveldað leiðina til hamingju, en ég þykist
þekkja fólk báðum megin við peningaskalann, efnað fólk og minna
efnað fólk. Efnað fólk sem ég þekki er ekkert sérstaklega ánægt eða
hamingjusamt, það á flotta hluti og getur gert margt sem aðrið geta
ekki, en uppá móti koma önnur vandamál sem væstir vilja kljást við.
Minna efnað fólk sem ég þykist þekkja mjög vel er eitthvað það
hamingjusamasta fólk sem ég þekki, en glíma við fjármálin. Svo er
fólkið í miðjunni sem ég talaði um sem eru svona "samir" allann
daginn sem glíma við bæði við peningamál og önnur mál! Þá hef ég
pælt er ekki bara best að eiga enga peninga? Gerast búddamunkur og
hlusta á Dalai Lama? Ég spyr, er hamingja ekki það sem allir
leitast eftir? Kannski felur hamingja í sér að sætta sig við sitt
og njóta lífsins? Róni sem er sáttur með að vera fullur allann
daginn og æla, ef hann er ánægður og hamingjusamur með þessi
hlutskipti sín, er hann þá ekki búinn að ná markmiði okkar allra?
Ég er ekki að segja að það sé þannig, bara spurning. Metnaður,
menntun og fleira er það sem gefur manni væntanlega gildi í lífnu,
festu og eitthvað til að vinna að, sækjast eftir, það er líklegast
það sem mun gera okkur öll hamingjusöm. En ég einhvern veginn fæ
alltaf þá tilfinningu að um leið og við sættum okkur við okkar, og
höldum ekki alltaf að grasið sé grænna hinum megin þá ættum við að
ná einhverju sem líkist hamingju.
Vó maður ég er orðinn ruglaður í hausnum á þessu.
Afsakaði þetta, .listi vikunnar kemur á næstu dögum fyrir ykkur
heilalausu börn þarna úti
Bjarki samur out
»
04.12.2006 23:21:25 / bjarki
Hvað er að frétta??
Af mér EKKERT.....
Ætla að taka titla vikunnar aftur á þetta......
- Aumingi vikunnar: Þennan skal ég skrifa á sjálfan mig, ekki
stoltur, á þetta skilið fyrir að falla fyrir bakkusnum.... sorry...
- Vonleysi vikunnar: Þessi fer á Steinaeina, fyrir að vera ekki
ennþá kominn með kærustu, á sjálfur reyndar eitthvað í þessum
titli... við erum greinilega ekki að gera góða hluti gömlu
kallarnir
- Von vikunnar: Pálmar Ragnarsson verður að fá þennan... maðurinn
spilar kannski körfu aftur, gott með þig
- Vonbrigði vikunnar: Björn Guðmundsson virðist ætla að komast inná
alla lista, en honum hlotnast þessi heiður fyrir að valda Rúnari
Árnasyni vonbbrigðum á hverjum degi.. ?? Hvernig ?? jú drengur
virðist ætla að vakna á hverjum morgni þrátt fyrir mjög háan aldur
og skorpu lifur...
- Hetja vikunnar: Skelli þessu á Bjarna Pál Hauksson, drenghelvítið
er búið að vera þvílíkt duglegur að læra að hálfa væri helmingi
meira en nóg...
- Skítur vikunnar: Er hálfvitinn sem flautaði á mig þegar HANN
svínaði fyrir mig, ef þú ert að lesa þetta máttu deyja.
- Mesti viðbjóður vikunnar: Er pottþétt SKÍTSEIÐIÐ Árni Matt ( held
það sé örugglega hann ) fyrir að vera í forsvari fyrir við því að
hækka áfengisgjaldið, Árni farðu til helvítis... Ef þetta er ekki
þú Árni sem stendur fyrir þessu þá sorry ég er eitthvað að
misskilja bara,,,
- Uppáhald vikunnar: Uppáhaldið mitt þessa vikunna er pottþett,
samloka með túnfisksalati og kók alveg sjúkur í það maður......
MAMMA BÚINN, KOMA AÐ SKEINA!!!!
Bjarki vikunnar out
»
24.11.2006 17:03:49 / bjarki
Stykkfærlsa........
- Heyrst hefur að Elmear Geir Jónsson sé orðinn svo feitur að hann
sjá ekki á sér sprellan lengur, Hann þarf víst að senda félaganum
sms til að heyra frá honum.....
- Enn og aftur sannast að Björn Guðmundsson er hommi, einungis
hommar nota orð einosg abbó, sjá í síðustu færlsu hlunksins
- Rúnar Árnason vissi ekki að það væri til AUKA sæng á heimilinu
fyrir tígrann. Verra er að ekki var "vitað" að það væri til AUKA
rúm þegar ég var hjá köppunum.
- Ákveðinn aðili í vinnunni er að gera mig vægast sagt brjálaðann,
hann getur gjörsamlega sogið úr mér alla orku.
- Þorsteinn V. Einarsson er officialy orðinn hommi, er akkúrat að
tala við hommann núna og hann er að skrifa ástardisk, en það sem ég
ætlaði að skirfa er að maðurinn er orðinn ÍR-ingur... dæmi hver
fyrir sig hvað þeim finnst um þau mál
- Ég er bara alls ekki nægilega gáfaður til að fatta hvað Óli Palli
var að tala um í síðasta kommenti þarf endilega að hringja i hann
til að fá háskóla-lega útskýringu
- Ólafur sem vinnur með mér er orðinn pabbi, til hamingju Óli (
nýtt nikkname á hann Pabba-pungur)
- Það er komið óvenjulega mikið af - í þessa færslu.
-Ég er ekki búinn að vera nógu duglegur að fara i ræktina í þessari
viku, ætla að bæta það upp og mæta alla helgina og taka hrikalega á
því.
- Hvað er málið með að útlendingar sem koma til Íslands og tala
hvorki ensku eða íslensku, en samt tölum við, við þá alltaf á
ensku... afhverju ekki íslensku fatta þetta ekki.....
- Ég tók þátt í keppni síðustu helgi ( sjá hérna...
www.steinieini.blogspot.com ) ég rannsakaði málin og sett það í
nefnd og niðurstaðan er sú að Steinieini hefur svindlað í keppninni
( keppnin sem visað er til kemur ekki áfengi við)
- Ég nenni ekki að skirfa meira.
Bjarki - out
»
18.11.2006 00:38:27 / bjarki
Sagði ykkur það strax kominn föstudagur...
Hef eginlega ekkert að segja, svo ég ætla búa til smá lista.
Hetja vikunnar er: Ólafur P. sálufélagi með meiru, hann fær
titilinn fyrir að hafa verið í fyrsta skipti næst hæðstur í stiga
skori á ævinni í körftuboltaleik, til hamingju Óli
Haugur Vikunar: Þessi fer pottþétt á Ívar eða Hassó. En honum
hlotnast þessi heiður fyrir að hafa lofað því að mæta á æfingu alla
daga vikunnar og taka þvílikt á þvi...... en sveik það og mætti
einu sinni HAUGUR
Hlussa vikunnar: Þetta var lítið mál finna út, Rúnar Árnason á
þennan skilið út ævina, þvílik hlussa hefur ekki sést í Vín siðan
Jhon heitinn Kandy var það. Drengur þurfti að kaupa sér webcam með
widescreen til að sjást.. hann er að verða feitari en Björn
Guðmundsson sem er bara alls ekki gott..
Hommi vikunnar: Þetta er ekkert vafa atriði, Björn Guðmundsson
hlýtur þennan og á að skammast sín, en hann ferðaðist í förunauti
með tveimur stúlkum 250 kílómetra til að komast í mall í
verslunarferð, einn með tveimur stelpum og fékk ekkert....!!! ..
SKAMM SKAMM Björn ég ætla ALDREI að sofna snúandi bakinu í þig...
Spekt vikunnar: Ég hendi þessum á Þorsteinn V. Einarsson fyrir að
vera komast yfir 6. helgina edrú... spekt á svona menn á meðan
aðrir vinir mans drekka úr sér allt vit og almenna hollustu daglega
í útlöndum
Æla vikunnar: Daníel Þ. Magnússon er ælan, en lengjan er búinn að
vera með pípandi niðurgang síðan á miðvikudag. Rassgatið á honum er
svo brunnið að hann þarft að sofa á maganum eða standandi... sjitt
ég vorkenni þér danni minn láttu þér batna yfirpungur.
Geðsýki vikunnar: Þetta er tveir menn sem eiga við road-rage að
stríða. Annan þennan sá ég berja utan í bílstjóragluggan á strætó
öskrandi að missa sig af bræði. Og hinn var á ljósunum hjá
Gullnesti neðst á Gullinbrú en þar var leigubílstjóri að hamra á
gluggan á öðrum bíl (við vorum stopp á rauðu) og var með
morðhótanir gagnvart bílstjóranum sem sat með mesta skelfingarsvip
sem ég hef séð á ævi minn á smettinu.... mér heyrðist að
bílstjórinn hafi svínað á leigarann.....
Stolt vikunnar: Fær Gunnar Egill fyrir að hafa fjárfest í einu
stykki nýrri íbúð og nýjum jeppa í sömu vikunni. Til hamingju með
þetta Gönnsó pungur og njóttu vel...
Bjarki Greifi Þorsteinsson með reccordið 1-1 í utandeildinni out
»
12.11.2006 19:19:31 / bjarki
Jæja gamlir hálsar.
Þið sem sögðuð: ég vissi að þú myndir ekki meika mánuð, og þú ert
aumingi og ég veit ekki hvað... þið getið steinhaldið kjafti og
hoppað uppí rassgatið á ykkur og Rúnar þú skulda mér pening.
Annars var þetta bara fint, afmæli hjá tryggva, chill og stuð þar
svo bærinn sem var allt i lagi. Soldið kalt og eittvhað en ég held
að ég hafi drukkið of mikið kaffi til að bæta upp kuldan maður.
En ég nenni ekki að skrifa meira
Góða viku
Bjarki kaffi-kall out
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|